Göngum í skólann: 2. bekkur sigraði

Grunnskóli Grundarfjarðar tók virkan þátt í átakinu "Göngum í skólann" í vikunni, þar sem nemendur voru hvattir til að velja umhverfisvænan ferðamáta. 2. bekkur bar sigur úr býtum þar sem allir nemendur gengu í skólann alla dagana.
8. bekkur hreppti 2. sætið, en 4. og 10. bekkur deildu 3. sætinu.
Skólinn þakkar nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir góða þátttöku og hvetur alla til að halda áfram að velja heilsusamlegan ferðamáta.