Óskilamunir

Í dag fóru nemendur í 4.bekk yfir óskilamuni skólans. Mikið hefur safnast af óskilamunum á rúmum 2 mánuðum. Einungis tæp 40% af óskilamununum voru merktir. Áætlað verðmæti er rúm 600.000kr. Allt sem var merkt fór á réttan stað en ómerkt föt eru enn í óskilamunum.

Við hvetjum foreldra að skoða myndirnar og koma upp í skóla að sækja það sem þið þekkið. Einnig að merkja vel fötin hjá börnunum.